Þjálfun kitlar Eið en umhverfið óheillandi

Ekki þjálfað síðan hann var með FH 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var aðstoðarmaður Arnars Þórs hjá landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eiður Smári Guðjohnsen var spurður út í mögulega endurkomu í þjálfun í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði þjálfunina sem slíka kitla en umhverfið vera óheillandi.
Í Innkastinu á Fótbolta.net var greint frá því að Eiður Smári væri vinsæll á Hlíðarenda og ef ráðist yrði í þjálfarabreytingar væri hann ofarlega á blaði.

TENGT EFNI
Efasemdaröddum á Hlíðarenda fjölgar - „Nafn Eiðs Smára hvíslað meðal stuðningsmanna“
Sigmar Vilhjálmsson, einn af þáttastjórnendum Bítisins á Bylgjunni, spurði Eið hreint út hvort að einhverjar líkur væru á því að hann myndi taka við Val.
Eiður hló að spurningunni og sagði það ekki efst í huga að svo stöddu.„Auðvitað kitlar að fara í þjálfun. Ég elska að þjálfa, elska að vera úti á velli. En mér finnst ekkert sérstaklega gaman að mæta í svona umhverfi vikulega. Þurfa að svara fyrir það hvort hlutirnir séu að ganga upp eða ekki,“ sagði Eiður.
Eiður hefur ekki verið í þjálfun síðan hann var með FH árið 2022. Hann var fyrst aðalþjálfari hjá FH 2020 og gerði mjög góða hluti, var aðstoðarmaður Arnars Þórs Viðarssonar með U21 landsliðið og aðstoðaði hann svo með A-landsliðið.

Heimild: Bítið