Fotbolti.net
24.06.26 - 12:23
Elvar Geir Magnússon

Neymar spilar gegn Skotlandi í kvöld

Brasilíska stórstjarnan Neymar.

Brasilíska stórstjarnan Neymar.

Canon

Mynd: EPA

Klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma mætast Skotland og Brasilía í lokaumferð C-riðils heimsmeistaramótsins.

Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu hefur staðfest að stórstjarnan Neymar sé tilbúinn að spila leikinn.
HM í dag - Lokaumferðin hefst og allt undir
TENGT EFNI

HM í dag - Lokaumferðin hefst og allt undir

Þessi 34 ára sóknarmaður hefur ekki tekið þátt í fyrstu tveimur leikjum Brasilíu í riðlakeppninni en hann er að koma til baka eftir kálfameiðsli. Hann hefur æft með liðinu undanfarna daga.

„Hann er klár í bátana, hann hefur æft mjög vel í vikunni. Hann er tilbúinn að spila og við erum mjög ánægðir með að hann sé tilbúinn aftur. Hann er hágæða leikmaður. Hann gæti komið inn í hálfleik eða byrjað. Hann hefur unnið vel og er klár," segir Ancelotti.

Reiknað er með því að Neymar muni koma inn af bekknum í leik kvöldsins.
Neymar spilar gegn Skotlandi í kvöld
Canon

Mynd: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.