Infantino kemur vatnspásunum til varnar

Infantino og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada.

Mynd: EPA

Guanni Infantino, forseti FIFA, hefur komið vatnspásunum á HM til varnar og segir að þær hafi verið innleiddar af íþróttalegum ástæðum en ekki fjárhagslegum.
Í hvorum hálfleik er tekin þriggja mínútna vatnspása, eftir um 22 mínútna leik og aftur á 67. mínútu. Leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn hafa gagnrýnt þessi hlé.
Pásurnar voru kynntar á þann hátt að þær hjálpi leikmönnum að ráða við hátt hitastig en þær hafa einnig opnað möguleika á auglýsingaglugga fyrir sjónvarpsstöðvar.

TENGT EFNI
Baulað á vatnspásurnar - Íslendingar ekki hrifnir
„Það er enginn fjárhagslegur ávinningur fyrir FIFA. Þessi ákvörðun okkar er algjörlega tekin af íþróttalegum ástæðum. Sjónvarpsstöðvar geta vissulega nýtt þetta í að fá inn tekjur aukalega sem er gott fyrir þær," segir Infantino.
Þjálfarar hafa notað pásurnar til að gefa taktískar leiðbeiningar og gagnrýnt að þær breyti taktinum og þróuninni í leikjunum.
Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, segir að í miklum hita sé rétt að taka vatnspásur en setur spurningamerki við að þær séu í öllum leikjum; sama þó aðstæður séu fínar fyrir leikmenn eða jafnvel leikið innanhúss með loftkælikerfi.
„Aðalástæðan fyrir þessum hléum er hitinn en fólk þarf líka að skilja að á svona mótum þar sem leikjaálagið er mikið er mikilvægt að geta fengið smá hvíld. Það skiptir líka miklu máli að öll lið, í öllum leikjum, spili við sömu kringumstæður," segir Infantino.
„Það er erfitt að réttlæta það að þjálfari gæti fengið tækifæri til að hafa meiri áhrif á leiki þegar hitastigið er hærra meðan á öðrum leik hafi þjálfari ekki sama tææfir."
Þá segir Infantino að vatnspásurnar hafi ekki minnkað ákefðina í leikjum og að leikmenn geti haldið orkustigi í gegnum leiki.