Fotbolti.net
24.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Átta sigrar í átta leikjum

4. deild: Átta sigrar í átta leikjum
Canon

Mynd: Aðsend

Álftanes 1 - 0 Árborg
1-0 Patrik Thor Pétursson ('14 )
Álftanes stefnir hraðbyri upp um deild eftir að hafa unnið sinn áttunda sigur í 4. deildinni í gær.

Patrik Thor Pétursson skoraði eina mark leiksins á 14. mínútu í 1-0 sigri gegn Árborg. Álftanes er því enn með fullt hús stiga þótt mótið sé nánast hálfnað.

Aðeins einn leikur er eftir af fyrri umferðinni og fátt bendir til þess að Álftnesingar séu að fara að slá af.

Álftanes situr á toppnum með 24 stig, sex stigum meira en Hamar sem er í öðru sæti og nú átta stigum meira en Árborg sem er í þriðja sætinu.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes10+1727
2Hamar10+2325
3Árborg9+2019
4Elliði10-513
5Úlfarnir10+112
6Vængir Júpiters9011
7KFR10-118
8Álafoss10-118
9ÍH10-77
10Hafnir10-277
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.