Foreldrarnir upplifðu stundina merkilegu með Arnari Bjarka - „Þetta er ekki ódýrt nafn"

Arnar Bjarki eftir leikinn gegn KA þar sem hann skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark.

Mynd: Breiðablik

Arnar Bjarki og tvíburararnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir.

Mynd: Úr einkasafni

Gunnleifur alltaf á sínum stað í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ein frá 2015 af Hildi, móður Arnars Bjarka.

Mynd: Úr einkasafni


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnleifur varði mark Breiðabliks á árunum 2013-19 eftir að hafa unnið titla með FH, KR og bikarmeistaratitil með Vaduz í Liechtenstein.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Bjarki eftir leikinn gegn KA þar sem hann skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark.

Mynd: Breiðablik
Arnar Bjarki Gunnleifsson, sem verður ekki 16 ára fyrr en seinna á þessu ári, skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni gegn KA. Hann innsiglaði sigur Breiðabliks með þriðja marki liðsins í fyrsta byrjunarliðsleik sínum fyrir Breiðablik.
„Hann hefur lagt sig gríðarlega mikið fram í vetur. Hann á framtíðina fyrir sér og ég er þakklátur fyrir hans hönd að hann sé að uppskera," sagði þjálfarinn hans, Ólafur Ingi Skúlason, við Fótbolta.net eftir leikinn.

Arnar Bjarki: Frábær tilfinning að skora fyrsta meistaraflokksmarkið sitt
„Það er ofboðslega skemmtilegt fyrir okkur sem erum að þjálfa í Breiðablik að það Fífan er oft full af krökkum að æfa sig aukalega. Hann er einn af mörgum sem hafa nýtt sér það. Mér finnst frábært að húsið sé fyrir krakkana til að koma og æfa og gera meira alla daga," segir Gulli.
Eru alltaf mætt í stúkuna
Gunnleifur var á sínum stað í stúkunni á sunnudagskvöldið, situr alltaf í sínu sæti og móðir Arnars Bjarka, Hildur Einarsdóttir, var sömuleiðis í stúkunni í sínu fasta sæti.
„Ég sit alltaf á mínum stað í stúkunni, þetta var í beinni línu við mig. Boltinn barst svolítið óvænt til hans frá varnarmanni og þetta var bara frábært. Þetta var merkileg upplifun fyrir okkur foreldra hans, við erum alltaf á vellinum, en reyndar á sitthvorum staðnum í stúkunni."
„Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu. Auðvitað er þetta gleði fyrir hans hönd fyrst og fremst, það er oft þannig að ef börnin manns eru hamingjusöm þá er maður hamingjusamur. Ég veit að þetta færði honum mikla gleði. Við erum ofboðslega glöð og stolt, ekki endilega út af markinu, draumar hans eru að rætast. Það eru margir krakkar sem spila fótbolta upp alla yngri flokkana og fá ekki sénsa í meistaraflokki, ekki bara hjá okkur, heldur víða. Hans draumur hefur alla tíð verið að spila með meistaraflokki og skora á Kópavogsvelli. Það er merkilegt að upplifa það með honum."
Með allt í teskeið
Leikurinn var fyrsti byrjunarliðsleikurinn. Tókstu eftir einhverju öðruvísi hjá honum þann daginn?
„Nei, ekki þannig. Hann er að gera þetta fyrir sjálfan sig, hann er bara með þetta allt í teskeið. Hann veit alveg hvað hann vill og hvað hann þarf að gera til að ná því, hann er duglegur og vill standa sig vel fyrir liðið sitt."
Hefur hann alltaf verið framherji?
„Nei, hann hefur meira verið á kantinum og á miðjunni heldur en frammi, en hann hefur líka verið þar."
Ekki nefndur Arnar Bjarki eftir Arnari og Bjarka
Nafnið, Arnar Bjarki, er þetta eftir tvíburunum frægu?
„Nei," segir Gulli og hlær. „Nei, okkur fannst þetta bara passa. Hann er fjórða barnið og nafnið flott. Við eigum samt mynd af honum með þeim, þeir eru ágætis félagar mínir, það er til fyndin mynd af þeim þegar hann er 2-3 ára held ég. Þetta er ekki ódýrt nafn, alvöru týpur og fótboltamenn sem þeir voru."
Mikill áhugi erlendis frá
Arnar Bjarki hefur verið sterklega orðaður við Bröndby í Danmörku. Hvernig líst Gunnleifi á framtíð sonar síns?
„Það hefur verið fullt af áhuga að utan. Við bara styðjum hann í því sem hann vill gera og gerir hann hamingjusaman. Hann er með fókusinn skýran varðandi hvað hann vill. Þegar það gerist þá bara gerist það. Hann þarf bara fyrst og fremst að standa sig vel á hverjum einasta degi í því sem hann er að gera, svo kemur hitt bara í ljós og skýrist," segir Gulli að lokum.

Arnar Bjarki og tvíburararnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir.

Mynd: Úr einkasafni

Gunnleifur alltaf á sínum stað í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ein frá 2015 af Hildi, móður Arnars Bjarka.

Mynd: Úr einkasafni


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnleifur varði mark Breiðabliks á árunum 2013-19 eftir að hafa unnið titla með FH, KR og bikarmeistaratitil með Vaduz í Liechtenstein.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



