09.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Dacourt búinn að semja við Roma. (Staðfest)
Olivier Dacourt er genginn til liðs við Roma á lánssamningi eftir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá félaginu í dag. Dacourt sem er 28 ára verður á láni hjá félaginu til loka tímabilssins og þá á félagið kost á að kaupa hann frá Leeds United. Dacourt gekk til liðs við Leeds frá Lens í maí 2000 á 7 milljónir punda en hefur ekkert fengið að leika undir stjórn Terry Venables hjá félaginu síðan í október gegn Hapoel Tel Aviv í Evrópukeppninni. Frægt varð þegar hann gagnrýndi störf Venables hjá félaginu á seinni hluta síðasta árs en í framhaldi af því bauðst Venables til að aka honum til Ítalí er Roma vildi semja við hann.
