BATE Borisov tapaði fyrir toppliði Shaktyor, 1-0, í úrvalsdeildinni í Hvíta-Rússlandi í kvöld. Sjö stig skilja liðin að eftir leikinn.
Willum Þór Willumsson byrjaði á varamannabekknum hjá BATE í kvöld en hann kom inná þegar sautján mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Þetta var sjötti leikur hans í deildinni en hann hefur byrjað þrjá leiki og komið þrisvar sinnum inn af bekknum.
Shaktyor, sem er núverandi meistari í deildinni, fer þetta tímabil vel af stað og er með 24 stig á toppnum.
BATE Borisov er á meðan í þriðja sæti með 17 stig.
Athugasemdir