Fotbolti.net
09.05.24 - 19:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Egill Orri skoðar skóla í Danmörku - „Ætla gera mitt besta hjá Þór þangað til"

Egill Orri skoðar skóla í Danmörku - „Ætla gera mitt besta hjá Þór þangað til"
Canon

Mynd: Midtjylland

Lengjudeildin

Egill Orri Arnarsson leikmaður Þórs kom liðinu á bragðið þegar hann jafnaði metin í 2-2 þegar liðið vann ótrúlegan endurkomu sigur á Aftureldingu í dag.

„Við byrjuðum illa en þetta var rosalegt í endan, ég var að deyja úr stressi. Ég hef aldrei upplifað annað eins drama," sagði Egill Orri.

Egill Orri er aðeins 16 ára gamall en hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór í dag.

„Ég sá að það var pláss fyrir mig á fjær svo ég tók hlaupið og boltinn endaði bara á hausnum á mér," sagði Egill.

Hann er á leið til Midtjylland í Danmörku í júlíu en hann er á leið í smá undirbúningsvinnu á morgun.

„Ég fer til Danmerkur á morgun og fer að skoða skóla. Svo ætla ég að gera mitt besta hjá Þór þangað til ég fer út," sagði Egill að lokum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.