05.11.26
Arsenal braut álögin á Anfield – Sex stórlið sem bíða enn eftir útisigri
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Arsenal vann langþráðan sigur á Anfield um síðustu helgi þegar Kai Havertz skoraði eina mark leiksins gegn Liverpool á sunnudaginn. Sigurinn var sérstaklega kærkominn fyrir Mikel Arteta og hans menn, enda hafði Arsenal ekki tekist að vinna á Anfield síðan í september 2012, þegar Arteta sjálfur var enn leikmaður félagsins. Alls hafði Arsenal farið sextán sinnum á Anfield án þess að vinna, en tókst loksins að brjóta álögin og sækja þrjú mikilvæg stig í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Það eru þó fleiri stórlið sem þekkja þessa tilfinningu vel. Sum hafa ekki unnið á ákveðnum útivöllum í áratugi þrátt fyrir að hafa fagnað fjölmörgum titlum og miklum árangri á þeim tíma. Fótbolti.net tók saman sex áhugaverðar viðureignir þar sem biðin eftir langþráðum útisigri stendur enn yfir.