05.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjóri Lens eftir svakalegan skell: Verðum að endurheimta eitthvað stolt


Mynd: EPA


Mynd: EPA

Como vann ótrúlegan 9-1 sigur á Lens í Meistaradeildinni í gær. Como bætti allskonar met en þetta er stærsti sigur í sögu keppninnar ásamt 8-0 sigrum Liverpool á Besiktas (2007) og Real Madrid á Malmö (2015)
Yannick Cahuzac, stjóri Lens, var eðlilega mjög sár eftir leikinn.
Yannick Cahuzac, stjóri Lens, var eðlilega mjög sár eftir leikinn.
„Við vorum gjörsamlega yfirspilaðir. Við verðum að skoða okkur sjálfa rækilega og reyna að endurheimta eitthvað stolt gegn Marseille á sunnudaginn," sagði Cahuzac.
„Við verðum að geta horft í augun á hver öðrum og segja sannleikann. Við verðum að rífa hvern annan upp og beina athyglinni að sunnudeginum."
„Við verðum að geta horft í augun á hver öðrum og segja sannleikann. Við verðum að rífa hvern annan upp og beina athyglinni að sunnudeginum."
