Fotbolti.net
05.11.26 - 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sindri leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Sindri leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri Þór Ingimarsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Stjarnan greinir frá því og þakkar Sindra fyrir árin í Garðabæ.

Sindri kom til félagsins fyrir tímabilið 2022 frá Augnabliki. Sindri er 27 ára varnamaður sem spilaði einnig sem djúpur miðjumaður hjá Stjörnunni. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og kom í Stjörnuna eftir fjögur tímabil með venslalið Breiðabliks, Augnabliki.

Ítarlegt viðtal við Sindra frá 2023
Bjóst kannski ekki við því að þetta myndi gerast svona fljótt
TENGT EFNI

Bjóst kannski ekki við því að þetta myndi gerast svona fljótt

„Við viljum nýta tækifærið til að þakka honum kærlega fyrir tíma hans hjá félaginu. Sindri gekk til liðs við okkur árið 2022 og lék alls 148 leiki fyrir félagið. Hann hefur verið mikilvægur hluti af okkar liði og skilur eftir sig góðar minningar innan félagsins," segir m.a. í tilkynningu Stjörnunnar.

Þar er eftirfarandi haft eftir Sindra:

„Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum, samherjum, þjálfurum og öllum sem koma að starfinu hjá Stjörnunni fyrir síðustu fimm ár. Ég hef eignast margar góðar minningar og kynnst frábæru fólki á þessum tíma. Ég er mjög þakklátur fyrir árin hjá Stjörnunni og allt sem ég hef fengið að upplifa með félaginu. Takk fyrir mig."
Sindri leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.