05.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
U19 landsliðskona í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Stjarnan

Mynd: Stjarnan

Védís Ösp Einarsdóttir (2008) er gengin til liðs við Stjörnuna frá Selfossi. Hún spiilaði 18 leiki og skoraði fimm mörk fyrir Selfoss sem hafnaði í 5. sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Tilkynning Stjörnunnar
Védís er fædd árið 2008. Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki 66 leiki og 22 mörk í meistaraflokki. Hún var lykilmaður hjá Selfossi í Lengjudeildinni í sumar, skoraði þar 5 mörk í 18 leikjum og var valin í úrvalslið deildarinnar.
Védís er uppalin á Hvolsvelli og hóf ferilinn með KFR áður en hún færði sig yfir á Selfoss. Hún er sterkur karakter með öflugan vinstri fót og getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður. Hún á 6 leiki með U19 landsliðinu, meðal annars á lokamóti EM síðasta sumar, og er einmitt við æfingar með U19 þessa dagana.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, segir: „Við erum mjög ánægð að fá Védísi til okkar. Hún er ungur leikmaður en hefur þegar sýnt hvað í henni býr í meistaraflokki og verið í stóru hlutverki í sínu liði. Hún er sterkur karakter, er með góðan vinstri fót og getur leyst fleiri en eina stöðu. Hún var eftirsótt, svo það segir margt að hún velji Stjörnuna. Ég hlakka til að vinna með henni og sjá hana taka næstu skref.“
Við bjóðum Védísi hjartanlega velkomna í Garðabæinn!