Fotbolti.net
05.11.26 - 09:45
Kári Snorrason

Kane framlengir við Bayern (Staðfest)

Sáttur við undirskrift.

Sáttur við undirskrift.

Canon

Mynd: Bayern Munchen

Gullboltahafinn Harry Kane hefur framlengt samning sinn við Bayern Munchen til ársins 2029.

Fyrri samningur hans við félagið hefði runnið út næsta sumar. Kane gekk til liðs við Bayern frá Tottenham fyrir þremur árum.

Kane vann hinn eftirsótta Ballon D'or gullbolta á dögunum en hann skoraði 73 mörk fyrir Bayern og enska landsliðið á síðasta tímabili.

Frá því að Kane gekk til liðs við Bayern hefur hann orðið markahæstur í þrígang og unnið Bundesliga tvisvar.

Kane hefur verið í viðræðum við Bayern um nýjan samning í nokkurn tíma en Barcelona og lið í Sádi-Arabíu hafa verið orðuð við framherjann.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.