Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, er spenntur fyrir komandi leik gegn Argentínu. Hann telur liðið vera vel undirbúið og allir í hópnum séu klárir í bátana fyrir erfiðan leik gegn heimsmeisturunum, klukkan 01:00 að íslenskum tíma næstu nótt.
„Ég held að þetta verði dýrmæt reynsla. Kjarninn af leikmönnunum okkar er mjög ungur og við er að þróa nýtt lið með nýjan leikstíl. Síðastliðið ár höfum við verið að mæta stórum liðum eins og Frakklandi og við vorum að spila við Japan í síðasta leik. Núna erum við að mæta heimsmeisturunum. Við erum búnir að eiga yndislegan tíma í Auburn. Ég held að allir séu spenntir fyrir leiknum. Ef þú [sem knattspyrnumaður] ert ekki spenntur fyrir því að mæta heimsmeisturunum þá ættirðu að gera eitthvað annað í lífinu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson á blaðamannafundi Íslands fyrir leikinn.
Arnar sagði í samtali við Vísi í gær það væri eins og leikmenn séu hræddir við að sækja úrslit og var hann því spurður hvernig úrslit hann myndi sætta sig við gegn Argentínu.
„Við höfum átt góðar frammistöðu gegn erfiðum mótherjum síðastliðið ár. Ég myndi sætta mig við jafntefli en við munum sækja til sigurs, augljóslega. Þetta er stór leikur fyrir Argentínu líka. Ég vil ekki nota setninguna að þeir þurfa að sanna sig, því þeir eru heimsmeistararnir, en allir þeirra leikmenn eru að berjast um byrjunarliðssæti fyrir fyrsta leik á HM. Þeir eru núverandi heimsmeistarar og vilja verja titilinn sinn. Það er svolítið síðan að lið hefur varið heimsmeistaratitilinn. Argentína er stolt þjóð með mikla ástríðu og frábæra leikmenn. Þetta verður svipað og þegar við spiluðum tvo leiki gegn Frakklandi á síðasta ári. Við vorum mjög samkeppnishæfir gegn þeim, við gerðum jafntefli og töpuðum 2-1 en gáfum Frökkunum leik. Ég er að vonast eftir svipuðum leik á móti Argentínu,“ sagði Arnar sem býst þó við erfiðum leik gegn Lionel Messi og félögum.
„Ég held að ef þú ert heimsmeistari þá veistu allt um fótbolta. Þú verst vel, þú sækir vel. Þú ert góður í miðblokk og góður í pressu. Fyrir minn persónulega óskalista, þá vona ég að Messi spili einhverjar mínútur í leiknum, þá get ég sagt barnabörnum mínum frá því að ég hafi deilt leikvelli með Messi. Ef hann spilar ekki þá erum við líka undirbúnir fyrir það. Ég held að allir áhorfendur fótbolta vilja sjá Messi spila þennan leik,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands. Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, staðfesti síðar á fréttamannafundi argentínska liðsins að Messi muni taka þátt í leiknum gegn Íslandi.


