Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 07:00
Atli Arason
Auburn, Alabama
Arnar telur æfingabúðirnar í Auburn frábæran undirbúning fyrir næstu stórmót
Markmiðið að fara á EM 2028 og HM 2030
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, á æfingu í Alabama.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, á æfingu í Alabama.
Mynd: KSÍ
Frá æfingu á keppnisvellinum í Auburn.
Frá æfingu á keppnisvellinum í Auburn.
Mynd: KSÍ

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, er mjög hrifinn af háskólabænum Auburn, Alabama í Bandaríkjunum. Mikill hiti og raki er á þessum árstíma í bænum en það sé einmitt góður undirbúningur fyrir næstu stórmót sem íslenska liðið ætlar sér á.


Aðstæðurnar hér eru frábærar,“ sagði Arnar á blaðamannafundi íslenska liðsins fyrir vináttulandsleikinn gegn Argentínu, sem fram fer klukkan 01:00 að íslenskum tíma næstu nótt.

Ég er mjög hrifinn af hugarfarinu hjá þessum bæ. Allt er mjög einbeitt á að styðja við íþróttamanninn. Sem þýðir að ábyrgð íþróttamannsins er bara að vinna hart af sér og standa sig vel,“

Íbúafjöldi Auburn telur um 83 þúsund manns. Bærinn er byggður upp í kringum háskólana á svæðinu og eru nærri helmingur allra íbúa skráðir í Auburn university, sem heldur úti margvíslegu íþróttastarfi, m.a. Auburn Tigers sem spilar amerískan fótbolta á Jordan-Hare vellinum.

Það eru framúrskarandi aðstæður hér fyrir allar íþróttir. Við vorum að klára æfingu á aðalvellinum sem er stór og flottur, grasið er flott. Kannski er aðeins of hlýtt hérna fyrir mig, komandi frá Íslandi. En ef þú er íþróttamaður í hæsta gæðaflokki þá þarftu að geta spilað við allar aðstæður. Markmið okkar er að komast á EM 2028 [í Bretlandi og Írlandi] og HM 2030 [í Marokkó, Portúgal og Spáni]. Þar verður heitt og rakt á báðum mótum. Það er því ekki hægt að kvarta yfir aðstæðum hér í Alabama,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins.

Ísland og Argentína munu spila fyrsta knattspyrnuleikinn á hinum sögufræga Jordan-Hare leikvangi sem tekur tæplega 88 þúsund manns í sæti. Þar veður öllu tjaldað til og heimamenn hafa undirbúið arnarflug fyrir leikinn, sem er hefur verið hefð á leikjum Auburn Tigers á Jordan-Hare frá árinu 2000. 


Slapp
banner