Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 15:40
Elvar Geir Magnússon
Örn mun sveima um leikvanginn þegar Ísland mætir Argentínu
Þetta er reyndar ekki örninn sem verður fljúgandi um á leik Íslands og Argentínu.
Þetta er reyndar ekki örninn sem verður fljúgandi um á leik Íslands og Argentínu.
Mynd: EPA
Það er eftirvænting í Auburn í Alabama í Bandaríkjunum þar sem Ísland og Argentína mætast í vináttulandsleik sem hefst að íslenskum tíma klukkan 01:00 aðfaranótt miðvikudags.

Í Auburn eru menn mjög stoltir af því að þetta verði fyrsti knattspyrnuleikurinn (soccer) á Jordan-Hare leikvangnum, sem er heimavöllur Auburn Tigers háskólaliðsins í amerískum fótbolta. Hann tekur 88 þúsund manns í sæti og verður uppselt á leikinn, eða allt að því.

Heimsmeistarar Argentínu fá skiljanlega stærstan hluta athyglinnar enda síðasti leikur liðsins fyrir HM og útlit fyrir að Lionel Messi spili hluta leiksins.

Skallaörn, sem er vanur að sveima um á leikjum Auburn Tigers mun vera hluti af umgjörðinni í kringum landsleik Íslands og Argentínu og var hann að æfa flugið þegar fréttamannafundur var haldinn á vellinum á dögunum.





Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner