Fotbolti.net
09.07.04 - 14:18
Magnús Már Einarsson

Melchiot til Birmingham (Staðfest)

Melchiot er hér í viðræðum við Paul Durkin dómara.

Melchiot er hér í viðræðum við Paul Durkin dómara.

Canon
Birmingham hefur fengið hægri bakvörðinn Mario Melchiot frítt frá Chelsea. Hinn 27 ára gamli Melchiot lék 175 leiki með Chelsea og skoraði í þeim fimm mörk en hann kom frítt til liðsins frá Ajax árið 1999 eftir að hafa komið upp úr unglingstarfi hollenska liðsins. Hann er fjórði leikmaðurin sem að kemur til Birmingham í sumar en hinir eru Emile Heskey, Muzzy Izzet og Julian Gray. Hjá liðinu hittir Melchiot fyrrum liðsfélaga sinn Mikael Forssell sem að er í láni frá Chelsea.
Annars er það að frétta hjá Birmingham að ólíklegt er að liðið nái að krækja í danska kantmanninn Jesper Gronkjaer frá Chelsea en svo virðist sem að hann sé á leið til spænska liðsins Sevilla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.