Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. júlí 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Líklegast að Lallana fari til Leiceser
Mynd: Getty Images
Adam Lallana er á förum frá Liverpool þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið.

Guardian segir líklegast að Lallana muni ganga til liðs við Leicester.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, fékk Lallana til Liverpool frá Southampton á 25 milljónir punda árið 2014.

Hinn 32 ára gamli Lallana hefur síðan þá spilað 178 leiki með Liverpool en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum á köflum.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði í gær að Lallana muni líklega ekki spila meira á tímabilinu þar sem hann vill ekki meiðast áður en hann fer í nýtt félag.
Athugasemdir
banner
banner
banner