
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir skrifaði í gær undir nýjan samning við Rosengård í Svíþjóð.
Hin 25 ára gamla Glódís hefur leikið með Rosengard síðan árið 2017. Hún varð sænskur meistari með félaginu á síðustu leiktíð.
„Ég er mjög ánægð með að hafa skrifað undir nýjan samning og hlakka til að halda áfram að bæta mig í þessu frábæra umhverfi," sagði Glódís eftir undirskrift og bætti við: „Þetta verður spennandi í ár í sænsku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni og ég hlakka til að takast á við þessar áskoranir með liðinu."
Glódís er lykilmaður í Rosengård eins og grein sænska fjölmiðilsins Expressen gefur til kynna. Þar er fyrirsögnin einfaldlega: „Stjarnan verður um kyrrt í Rosengård."
Glódís er aðeins 25 ára en er með gríðarlega reynsla miðað við aldur. Hún á að baki 84 A-landsleiki og hefur hún í þeim skorað sex landsliðsmörk. Frábær leikmaður.
Athugasemdir