Fotbolti.net
26.08.26 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

Marmoush og Gonzalez fara frá City til Tottenham og Newcastle

Omar Marmoush.

Omar Marmoush.

Canon

Mynd: EPA

Tottenham hefur náð samkomulagi við Manhester City um að fá framherjann Omar Marmoush. Egypski landsliðsmaðurinn fer á lánssamningi en Tottenham er skyldugt til að kaupa hann á 60 milljónir punda næsta sumar.

Marmoush er 27 ára og fylgir brasilíska kantmanninum Savio (áður Savinho) frá City til Tottenham.

Marmoush kom til City frá Eintracht Frankfurt fyrir 59 milljónir punda í janúar og var mestmegnis varaskeifa fyrir Erling Haaland á tíma sínum á Etihad leikvangnum.
Gonzalez heldur norður
Þá hefur Newcastle fengið samþykkt 52 milljóna punda kaup á miðjumanninum Nico Gonzalez frá Manchester City.

Gonzalez er 24 ára og hefur verið eitt og hálft ár í ensku úrvalsdeildinni, eftir að hafa komið frá Porto. Spánverjinn var ónotaður varamaður þegar City vann Bournemouth 2-1 í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Stórar breytingar hafa verið á Newcastle á þessu tímabili og síðustu mánuði hafa lykilhlekkirnir Bruno Guimaraes, Sandro Tonali, Anthony Gordon og Kieran Trippier horfið á braut.
Nico Gonzalez.

Nico Gonzalez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.