26.08.26 - 09:29
Elvar Geir Magnússon
Miðbær spilar sinn fyrsta leik í Jerevan

Lið KM samankomið í Leifsstöð á leiðinni út.

Mynd: Knattspyrnufélagið Miðbær

Íslandsmeistararnir í Futsal, KM, eru mættir til Jerevan í Armeníu þar sem liðið tekur þátt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í Futsal fyrir hönd Íslands.
Knattspyrnufélagið Miðbær hefur skipað sér í hóp fremstu Futsal-liða landsins, leikur í E-riðli keppninnar. Félagið vann sér inn þátttökurétt í þessari stærstu félagsliðakeppni Evrópu í fótbolta innanhúss eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í upphafi árs.
Liðið hefur þegar komið sér fyrir í Armeníu og hefur leik í dag, 26. ágúst, gegn þýska meistaraliðinu TSV Weilimdorf. Leikurinn hefst klukkan 11:00 og verður sýndur beint á Youtube.
Leikjaskrá KM í E-riðli:
26. ágúst (í dag): TSV Weilimdorf (Þýskaland) gegn KM
27. ágúst: FC Tallinn B.P. (Eistland) gegn KM
29. ágúst: Unisport (Armenía) gegn KM

TENGT EFNI
Futsal: Húsfyllir þegar KM stöðvaði sigurgöngu Ísbjarnarins
Spánverjinn Joaquín Linares stofnaði KM og félagið hefur vakið athygli spænskra fjölmiðla. Með því að smella hér má lesa umfjöllum úr Diario AS.
Íslenskt félagslið hefur aldrei náð stigi í Evrópuleik í Futsal en vonandi breytist það í Armeníu. Hægt er að fylgjast náið með gengi liðsins, úrslitum og lífinu á bak við tjöldin á opinberri Instagram-síðu KM.