Fotbolti.net
26.08.26 - 09:10
Elvar Geir Magnússon

Þýskur varnarmaður orðaður við Man Utd - Villa vill sóknarmenn

Finn Jeltsch í leik með Stuttgart.

Finn Jeltsch í leik með Stuttgart.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Ungur Þjóðverji er orðaður við Manchester United, Tottenham sýnir alsírskum kantmanni áhuga og Aston Villa reynir að styrkja sóknarlínuna. Þetta er meðal efnis í slúðurpakka dagsins.
Manchester United íhugar að setja sig í samband við Stuttgart vegna áhuga á þýska miðverðinum Finn Jeltsch (20). Varnarmaðurinn ungi hefur vakið áhuga um alla Evrópu. (CaughtOffside)

Manchester City mun gera formlegt tilboð í argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez (25) hjá Chelsea áður en glugganum verður lokað. (Fabrizio Romano)

Tottenham gæti gert tilboð í alsírska kantmanninn Amine Gouiri (26) hjá Marseille. Ítalska félagið Napoli er að reyna að fá hann. (Corriere dello Sport)

Aston Villa hefur gert tilboð í franska sóknarmanninn Jean-Philippe Mateta (29) þó það sé langt frá verðmati Lundúnafélagsins. (Athletic)

Aston Villa er nálægt samkomulagi við Chelsea um kaup á senegalska sóknarmanninum Nicolas Jackson (25) fyrir 60 milljónir punda. (Foot Mercato)

Leeds United og Crystal Palace hafa áhuga á írska varnarmanninum Jake O'Brien (25) hjá Everton. (Football insider)

Nottingham Forest er í viðræðum við Corinthians um að fá brasilíska miðjumanninn Andre (20). (Daily Mail)

Hull City hefur náð samkomulagi við Union Berlín um þýska framherjann Ilyas Ansah (21). Kaupin munu ná rúmlega 17 milljónum punda. (Fabrizio Romano)

Newcastle mun gera 51 milljón punda lokatilboð í belgíska framherjann Matias Fernandez-Pardo (21) hjá Lille. (Sacha Tavolieri)
Amine Gouiri.

Amine Gouiri.

Canon

Mynd: EPA

Nicolas Jackson.

Nicolas Jackson.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.