26.08.26 - 08:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
O'Neill: Engin huggun að spila í Evrópudeildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Celtic mun spila í Evrópudeildinni á þessu tímabili eftir ótrúlegt tap gegn LASK í undankeppni Meistaradeildarinnar í gær.
Celtic var með 3-0 forystu eftir fyrri leikinn. Staðan var 1-1 í hálfleik í gær en LASK fór hamförum í seinni hálfleik og skoraði fjórða markið á 90 mínútu. Leikurinn fór í framlengingu og LASK vann 5-1 og samanlagt 5-4.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Sturluð dramatík er Celtic og Víkingsbanarnir féllu úr leik
Martin O'Neill, stjóri Celtic, var eðlilega svekktur í leikslok.
„Við áttum að vera búnir að klára leikinn í hálfleik. Við klikkuðum á tveimur frábærum færum og gáfum þeim líflínu rétt fyrir hálfleik og svo annað strax í upphafi seinni hálfleiks. Þetta er mitt lið og mín ábyrgð," sagði O'Neill.
„Þetta eru mikil vonbrigði. Við spilum í Evrópudeildinni en það er engin huggun í kvöld."