Fotbolti.net
26.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Minteh of dýr fyrir Liverpool

Minteh of dýr fyrir Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Liverpool ætlar að styrkja vængstöðurnar fyrir lok félagaskiptagluggans um mánaðarmótin.
Félagið er með Bradley Barcola, vinstri kantmann PSG, og Yankuba Minteh, hægri kantmann Brighton, efst á óskalistanum.

Brighton hefur hafnað tveimur tilboðum frá Liverpool sem hljóðuðu upp á 50 og 60 milljónir punda.

Enski blaðamaðurinn Ben Jacobs segir að Brighton vilji fá 80 milljónir punda fyrir hann en Liverpool er ekki tilbúið að borga svo hátt verð fyrir hann. Félagið er ekki tilbúið að fara í frekari viðræður nema Brighton lækki kröfurnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.