Fotbolti.net
09.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Reuteler komin til Arsenal (Staðfest)

Reuteler komin til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hertz
Arsenal er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir lykilkonu svissneska landsliðsins, Géraldine Reuteler.
Reuteler er 27 ára gömul og spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hún kemur úr röðum Eintracht Frankfurt þar sem hún hefur verið í algjöru lykilhlutverki á undanförnum árum.

Reuteler hefur skorað 18 mörk í 91 leik fyrir svissneska landsliðið og 40 mörk í 146 leikjum fyrir Frankfurt.

„Arsenal er eitt af stærstu félagsliðum heims og ég er svo stolt að fá tækifæri til að spila fyrir félagið. Ég elska leikstíl liðsins og get ekki beðið eftir að stíga á völlinn," segir Reuteler meðal annars.

Arsenal vann Meistaradeildina í fyrra en datt úr leik í undanúrslitum í ár.

Reuteler komin til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.