Það gengur hægt hjá Manchester United að landa kantmanninum Jadon Sancho frá Borussia Dortmund.
Dortmund vill fá 120 milljónir evra fyrir kantmanninn tvítuga. Viðræður hafa átt sér stað síðustu vikurnar á milli félagana en það gengur eins og áður segir hægt.
Talið er að Dortmund sé búið að setja sinn eigin gluggadag varðandi Sancho og er sá dagur á morgun. Því hefur verið haldið fram að á morgun sé síðasta tækifæri United til að kaupa Sancho.

Sancho var staddur á Englandi um helgina og fór í gleðskap. Dortmund sendi frá sér yfirlýsingu vegna þess og sagði að það hefði verið allt í góðu, og að ekkert benti til þess að Sancho hefði brotið reglur varðandi kórónuveirufaraldurinn.
Samkvæmt þýska fjölmiðlinum ruhr nachrichten þá er fastlega búist við því hjá Dortmund að Sancho fljúgi með liðinu til Sviss í æfingaferð á morgun.
Athugasemdir