Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 09. ágúst 2020 10:50
Aksentije Milisic
Segja Havertz vera búinn að samþykkja fimm ára samning hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Franska útvarpsstöðin RMC Sport fullyrðir það að leikmaðurinn eftirsótti, Kai Havertz, sé búinn að samþykkja fimm ára samning hjá Chelsea.

Havertz spilaði sinn fyrsta leik fyrir Bayer Leverkusen tímabilið 2016-2017 og hefur vakið áhuga margra stórliða síðan þá.

Chelsea hefur leitt kapphlaupið um Havertz en Frank Lampard vill fá þennan 21 árs gamla leikmann í sóknarlínu Chelsea með þeim Timo Werner og Hakim Ziyech.

Chelsea og Leverkusen eiga enn eftir að semja um kaupverð á leikmanninum en Leverkusen vill ekki fá minna en 90 milljónir punda fyrir Havertz. Forráðarmenn Chelsea eru bjartsýnir á að kaupin munu ganga í gegn á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner