Fotbolti.net
09.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ashley Williams aðstoðar Bellamy

Ashley Williams aðstoðar Bellamy
Canon

Mynd: EPA

Ashley Williams, fyrrum leikmaður Swansea og Everton í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi Craig Bellamy í velska landsliðinu.
Williams lék 86 landsleiki fyrir Wales og var fyrirliði þegar þjóðin náði sögulegum árangri á EM 2016. Gareth Bale leiddi Wales alla leið í undanúrslit Evrópumótsins þar sem landsliðið tapaði fyrir Portúgal. Portúgalir unnu svo heimamenn Frakka í úrslitaleiknum til að tryggja sér sögulegan titil.

Williams hefur starfað sem fótboltasérfræðingur frá því að hann lagði skóna á hilluna í janúar 2021, auk þess að koma að þjálfun yngri landsliða Wales.

Bellamy vildi fá Williams til starfa með A-landsliðinu og auk hans bætist Alan Sheehan, fyrrum aðalþjálfari Swansea City, við þjálfarateymið.

Þeir taka við störfum Piet Cremers og James Rowberry. Cremers var ráðinn sem aðalþjálfari varaliðs Club Brugge á meðan Rowberry fer til að einbeita sér að starfi sínu hjá Stoke City.

Andrew Crofts er áfram aðstoðarþjálfari Bellamy þrátt fyrir að hafa verið ráðinn í þjálfarateymi Roberto De Zerbi hjá Tottenham nýlega.

Wales mætir Portúgal, Danmörku og Noregi í Þjóðadeildinni í komandi landsleikjahlé.
Ashley Williams aðstoðar Bellamy
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.