Fotbolti.net
09.09.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Liverpool og Man Utd fylgjast með Thiaw

Malick Thiaw, varnarmaður Newcastle.

Malick Thiaw, varnarmaður Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Á hverjum degi skoðum við slúðrið í boði Powerade. Slúðurpakkinn er með styttra móti þennan miðvikudaginn.
Liverpool og Manchester United fylgjast grannt með Malick Thiaw (25). Newcastle hefur engan hug á að selja þýska varnarmanninn. (Caught Offside)

Kantmaðurinn Chemsdine Talbi (21) hjá Sunderland er nálægt því að ganga til liðs við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu. (Football Insider)

Búist er við að Fulham hefji viðræður við varnarmanninn Calvin Bassey (26) um nýjan samning en ítalska félagið Inter í Mílanó hefur sýnt honum áhuga. (Teamtalk)

Kantmaðurinn Rayan (20) hjá Bournemouth er með riftunarákvæði í samningi sínum upp á 130 milljónir punda sem tekur gildi í félagaskiptaglugganum sumarið 2027. (David Ornstein)

Miðjumaðurinn Joe Willock (27) mun fá tilboð um nýjan samning hjá Newcastle ef hann heldur áfram að standa sig vel undir stjórn Matthias Jaissle. (Football Insider)

Fyrrum miðjumaður Real Madrid, James Rodriguez (35), á í viðræðum um að ganga til liðs við Avellino í ítölsku B-deildinni, en liðið er þjálfað af fyrrum ítalska varnarmanninum Alessandro Nesta. (Marca)

Chelsea er reiðubúið að reyna að fá enska miðjumanninn Alex Scott (23) frá Bournemouth í janúar. (Teamtalk)

Jamie Vardy (39) var ekki með Burnley gegn Wrexham í gær þar sem enski sóknarmaðurinn átti eftir að taka út leikbann frá tíma sínum á Ítalíu. (Mail)

Manchester United goðsögnin Ryan Giggs hitti Elliot Anderson (23) í golfi í vor og reyndi að sannfæra hann um að fara til United. Anderson, sem síðan gekk í raðir Manchester City, bað Giggs um að láta sig í friði. (Mail)
Chemsdine Talbi.

Chemsdine Talbi.

Canon

Mynd: EPA

Rayan.

Rayan.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.