Fotbolti.net
09.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi
Canon

Mynd: EPA

José Mourinho þjálfari Real Madrid fór víðan völl í viðtali eftir 2-1 sigur gegn Inter í Meistaradeildinni í gær.
Maður leiksins ósammála: Courtois bjargaði okkur
TENGT EFNI

Maður leiksins ósammála: Courtois bjargaði okkur

Liðin mættust í fyrstu umferð í deildarkeppninni og úr varð gríðarlega fjörugur leikur þar sem markverðirnir Thibaut Courtois og Josef Martínez áttu nokkrar magnaðar vörslur.

Federico Valverde fyrirliði Real fékk verðlaun fyrir að vera besti leikmaður vallarins en sagðist vera hissa á því að liðsfélagi hans Courtois hafi ekki hlotið verðlaunin. Mourinho er sammála.

„Courtois átti að vera maður leiksins í kvöld... sá sem ákvað þetta var kannski sofandi," sagði Mourinho. „Ég vil ekki taka neitt af frammistöðu Valverde, en ef Courtois var ekki maður leiksins í kvöld þá mun hann aldrei vera það.

Mourinho var einnig spurður út í Vinícius Júnior sem lék fyrstu 87 mínúturnar og Yan Diomande sem kom inn af bekknum.

„Vinícius er ekki upp á sitt besta og hann veit það. Hann er að vinna hörðum höndum að því að verða besta útgáfan af sjálfum sér og ég ber svo mikla virðingu fyrir honum. Þetta er magnaður fótboltamaður.

„Með Yan Diomande þurfum við að taka eitt skref í einu. Hann er nýkominn til okkar án þess að hafa átt undirbúningstímabil. Eitt skref í einu."


Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi
Canon

Mynd: EPA

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.