09.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bertrand Traoré í Wolves (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Wolverhampton Wanderers eru búnir að krækja sér í sóknarleikmann fyrir átökin sem eru framundan í Championship deildinni.
Bertrand Traoré kemur á frjálsri sölu eftir að hafa skorað eitt mark í tólf úrvalsdeildarleikjum með Sunderland á síðustu leiktíð.
Traoré er 31 árs gamall og gerir eins árs samning við Úlfana, sem eru með 8 stig eftir 5 umferðir í Championship. Traoré hafði áður skorað 9 mörk í 55 úrvalsdeildarleikjum með Aston Villa.
Traoré er 31 árs gamall og gerir eins árs samning við Úlfana, sem eru með 8 stig eftir 5 umferðir í Championship. Traoré hafði áður skorað 9 mörk í 55 úrvalsdeildarleikjum með Aston Villa.
Bertrand signs ???? pic.twitter.com/COuRDblI09
— Wolves (@Wolves) September 7, 2026
