Fotbolti.net
09.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Man Utd gefur út greiðslukort með nýjum samstarfsaðila

Man Utd gefur út greiðslukort með nýjum samstarfsaðila
Canon

Mynd: EPA

Breska fjármálatæknifyrirtækið SumUp er búið að semja um að hafa auglýsingu á treyjum Manchester United til næstu ára.
Merki fyrirtækisins verður á ermum treyja allra liða Man Utd í báðum kynjum og öllum flokkum.

Rauðu djöflarnir munu skarta merki SumUp þegar þeir mæta til leiks í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Þar taka þeir á móti Sabah Baku frá Aserbaídsjan.

„Þetta samstarf mun auka möguleika stuðningsmanna félagsins á að tengjast félaginu í gegnum ýmsa gjafaleiki, keppnir og upplifanir. Man Utd og SumUp munu gefa saman út greiðslukort sem inniheldur sérstök tilboð fyrir notendur víðsvegar um Bretland," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Manchester United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.