Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 09. september 2022 20:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland mætir Venesúela í vináttuleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland lýkur leik í Þjóðadeildinni þann 27. september þegar liðið mætir Albaníu ytra. Það gæti farið svo að með sigri tryggi liðið sér sæti í A deildinni.


KSÍ hefur staðfest að liðið muni mæta Venesúela í vináttulandsleik þann 22. september en sá leikur mun fara fram í Austurríki.

Venesúela er í 53. sæti heimslista FIFA og Salomon Rondon framherji Everton er þeirra markahæsti maður frá upphafi með 35 mörk í 88 leikjum.

Leikmannahópur Íslands fyrir leikina tvo verður opinberaður föstudaginn 16. september.


Athugasemdir
banner
banner
banner