Leikmaður Bournemouth orðaður við Liverpool - De Bruyne til Sádi - Fer Trent á frjálsri sölu?
   mið 09. október 2024 19:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umfjöllun
50 leikmenn á hættusvæði fyrir lokaumferðina - Fimm þjálfarar
Höskuldur er á hættusvæði.
Höskuldur er á hættusvæði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel hefur fengið þrjú gul í deildinni á tímabilinu.
Danijel hefur fengið þrjú gul í deildinni á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dóri er einni áminningu frá leikbanni.
Dóri er einni áminningu frá leikbanni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um aðra helgi fer fram næstsíðast umferð Bestu deildarinnar, lokaumferðin fer svo fram viku síðar.

Í gær voru þrettán leikmenn úrskurðaðir í leikbann en samkvæmt því sem Fótbolti.net kemst næst er 50 leikmaður á hættusvæði fyrir lokaumferðina og fimm aðalþjálfarar.

Á meðal leikmanna á hættusvæði er Viktor Jónsson sem er í baráttunni um markakóngstitilinn, Viktor er markahæstur sem stendur. Fimm leikmenn Breiðabliks og fjórir leikmenn Víkings eru á hættusvæði en þau lið geta mæst í úrslitaleik í síðustu umferðinni. Eina sem kemur í veg fyrir „raunhæfan" úrslitaleik er sigur Víkings og tap Breiðabliks í komandi umferð.

Frá eru taldir leikmenn sem eru á hættusvæði en eru farnir til Bandaríkjanna í háskólanám. Leikmenn fara í leikbann fyrir fjögur spjöld, næst eftir sjö gul spjöld og svo aftur eftir önnur þrjú gul spjöld.

Leikmenn:
Víkingur: Ingvar Jónsson (3), Helgi Guðjónsson (3), Erlingur Agnarsson (3) og Danijel Dejan Djuric (3).

Breiðablik: Viktor Karl Einarsson (3), Patrik Johannesen (3), Höskuldur Gunnlaugsson (3), Andri Rafn Yeoman (3), Alexander Helgi Sigurðarson (3).

Valur: Kristinn Freyr Sigurðsson (9), Patrick Pedersen (3), Bjarni Mark Antonsson (3) og Gylfi Þór Sigurðsson (3).

Stjarnan: Heiðar Ægisson (6), Örvar Eggertsson (6), Guðmundur Baldvin Nökkvason (3), Óli Valur Ómarsson (3), Róbert Frosti Þorkelsson (3) og Baldur Logi Guðlaugsson (3).

ÍA: Steinar Þorsteinsson (6), Viktor Jónsson (3), Erik Tobias Sandberg (3) og Arnór Smárason (3).

FH: Böðvar Böðvarsson (6), Ingimar Torbjörnsson Stöle (3), Finnur Orri Margeirsson (3) og Vuk Oskar Dimitrijevic (3).

KA: Ívar Örn Árnason (9), Rodri (6), Ásgeir Sigurgeirsson (3) og Elfar Árni Aðalsteinsson (3).

Fram: Kyle McLagan (6), Adam Örn Arnarson (6), Fred (3), Tiago (3), Magnús Þórðarson (3), Kennie Chopart (3) og Haraldur Einar Ásgrímsson (3).

KR: Axel Óskar Andrésson (6).

Vestri: Sergine Fall (6), Gunnar Jónas Hauksson (6) og Pétur Bjarnason (3).

HK: Leifur Andri Leifsson (6), Þorsteinn Aron Antonsson (3), Brynjar Snær Pálsson (3) og Atli Þór Jónasson (3).

Fylkir: Nikulás Val Gunnarsson (6), Birkir Eyþórsson (6), Orri Sveinn Segatta (3) og Arnór Breki Ásþórsson (3).

Þjálfarar:
Halldór Árnason, Breiðablik (3), Jökull I. Elísabetarson, Stjarnan (3), Rúnar Kristinsson, Fram (3), Heimir Guðjónsson, FH (3), Jón Þór Hauksson, ÍA (3), Sandor Matus, HK (3, markmannsþjálfari).
Besta-deild karla - Efri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 25 17 5 3 64 - 27 +37 56
2.    Breiðablik 25 17 5 3 58 - 30 +28 56
3.    Valur 25 11 7 7 59 - 40 +19 40
4.    Stjarnan 25 11 6 8 47 - 39 +8 39
5.    ÍA 25 11 4 10 45 - 37 +8 37
6.    FH 25 9 6 10 40 - 46 -6 33
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KA 25 8 7 10 38 - 46 -8 31
2.    Fram 25 8 6 11 36 - 43 -7 30
3.    KR 25 7 7 11 48 - 49 -1 28
4.    Vestri 25 6 7 12 30 - 48 -18 25
5.    HK 25 6 4 15 32 - 63 -31 22
6.    Fylkir 25 4 6 15 29 - 58 -29 18
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner