Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   mán 09. desember 2024 10:30
Elvar Geir Magnússon
Líklegt að Chiesa spili á morgun
Federico Chiesa hefur aðeins spilað 77 mínútur fyrir Liverpool og ekki komið við sögu síðan í september. Hann ætti hinsvegar að bæta ofan á mínútufjöldann á morgun, þegar Liverpool mætir Girona í Meistaradeildinni.

Ítalski landsliðsmaðurinn kom til Liverpool frá Juventus í ágúst og skoraði nýlega mark í U21 leik gegn Nordsjælland.

Arne Slot stjóri Liverpool sagði í síðustu viku að endurkoma Chiesa myndi gefa Mohamed Salah tækifæri til að fá smá hvíld. Liverpool Echo segir að Chiesa muni væntanlega koma við sögu á morgun.

Ólíklegt er talið að hann byrji á Spáni en hann fær líklega tækifæri til að sýna sig. Hann er með eina stoðsendingu í þeim þremur leikjum sem hann hefur komið við sögu í á tímabilinu.

Slot mun spjalla við fréttamenn seinna í dag en rétt eins og í ensku úrvalsdeildinni þá trónir Liverpool á toppnum í Meistaradeildinni.
Stöðutaflan Evrópa Meistaradeildin
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 8 8 0 0 23 4 +19 24
2 Bayern 8 7 0 1 22 8 +14 21
3 Liverpool 8 6 0 2 20 8 +12 18
4 Tottenham 8 5 2 1 17 7 +10 17
5 Barcelona 8 5 1 2 22 14 +8 16
6 Chelsea 8 5 1 2 17 10 +7 16
7 Sporting 8 5 1 2 17 11 +6 16
8 Man City 8 5 1 2 15 9 +6 16
9 Real Madrid 8 5 0 3 21 12 +9 15
10 Inter 8 5 0 3 15 7 +8 15
11 PSG 8 4 2 2 21 11 +10 14
12 Newcastle 8 4 2 2 17 7 +10 14
13 Juventus 8 3 4 1 14 10 +4 13
14 Atletico Madrid 8 4 1 3 17 15 +2 13
15 Atalanta 8 4 1 3 10 10 0 13
16 Leverkusen 8 3 3 2 13 14 -1 12
17 Dortmund 8 3 2 3 19 17 +2 11
18 Olympiakos 8 3 2 3 10 14 -4 11
19 Club Brugge 8 3 1 4 15 17 -2 10
20 Galatasaray 8 3 1 4 9 11 -2 10
21 Mónakó 8 2 4 2 8 14 -6 10
22 Qarabag 8 3 1 4 13 21 -8 10
23 Bodö/Glimt 8 2 3 3 14 15 -1 9
24 Benfica 8 3 0 5 10 12 -2 9
25 Marseille 8 3 0 5 11 14 -3 9
26 Pafos FC 8 2 3 3 8 11 -3 9
27 St. Gilloise 8 3 0 5 8 17 -9 9
28 PSV 8 2 2 4 16 16 0 8
29 Athletic 8 2 2 4 9 14 -5 8
30 Napoli 8 2 2 4 9 15 -6 8
31 FCK 8 2 2 4 12 21 -9 8
32 Ajax 8 2 0 6 8 21 -13 6
33 Frankfurt 8 1 1 6 10 21 -11 4
34 Slavia Prag 8 0 3 5 5 19 -14 3
35 Villarreal 8 0 1 7 5 18 -13 1
36 Kairat 8 0 1 7 7 22 -15 1
Athugasemdir
banner
banner