Fotbolti.net
14.09.26 - 16:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

FH víxlar á heimaleikjum við Frankfurt

FH spilar heimaleikinn á Kaplakrikavelli.

FH spilar heimaleikinn á Kaplakrikavelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH hefur víxlað á heimaleikjum sínum og þýska liðsins Eintracht Frankfurt en liðin mætast í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins seinna í þessum mánuði.

Drátturinn fór þannig að FH átti að spila seinni leikinn á heimavelli en FH fékk að víxla á heimaleikjum. Engin flóðljós eru á Kaplakrikavelli og því hefði þurft að byrja heimaleik FH klukkan 14:30 þar sem gera þarf ráð fyrir framlengingu í seinni leikjum einvíganna. Birtuskilyrði á Íslandi undir lok september bjóða ekki upp á að leikir hefjist seinna um daginn, nema flóðlýsing sé á völlunum.

Til þess að FH geti spilað á sínum heimavelli og sem flestir gætu séð leik liðsins gegn þýska liðinu var ákveðið að víxla heimaleikjum.
„Með því að breyta þessu svona getum við spilað klukkan 16. Ef að seinni leikurinn hefði verið heima, eins og var gert ráð fyrir upprunalega, þá hefðum við þurft að byrja klukkan hálf þrjú vegna þess að í seinni leik er möguleiki á framlengingu. Ég hafði samband við Frankfurt sem tók vel í þetta. Það er stórt að mæta Frankfurt, sögufrægt félag sem hét öðru nafni (1. FFC Frankfurt) þegar það vann Evróputitla. Maður vill gefa sem flestum möguleikann á að koma og sjá þennan leik, það er stórt fyrir okkur að fá svona stórt lið í heimsókn. Við erum þakklát Frankfurt að taka svona vel í þetta," segir Davíð Þór Viðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH.

1. FFC Frankfurt vann Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum á árunum 2001-2015.

Evrópubikarinn
miðvikudagur 23. september
16:00 Breiðablik-Czarni (Kópavogsvöllur)
16:00 FH-Eintracht Frankfurt (Kaplakrikavöllur)

miðvikudagur 30. september
16:30 Eintracht Frankfurt-FH (Am Brentanobad)
17:00 Czarni-Breiðablik (Zaglebiowski Park Sportowy)
FH sigraði Apollon í fyrstu umferð keppninnar.

FH sigraði Apollon í fyrstu umferð keppninnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hafnfirðingurinn Alexandra Jóhannsdóttir spilaði með Eintracht Frankfurt á árunum 2021 og 2022.

Hafnfirðingurinn Alexandra Jóhannsdóttir spilaði með Eintracht Frankfurt á árunum 2021 og 2022.

Canon

Mynd: Mirko Kappes

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.