10.04.21 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo til PSG ef Mbappe fer til Real?

Cristiano Ronaldo.

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo.

Mynd: Getty Images
Ítalska blaðið <i>Tuttosport</i> segir að franska stórliðið PSG gæti náð í Cristiano Ronaldo ef Kylian Mbappe fer til Real Madrid.
Real Madrid fer ekki leynt með áhuga sinn á að krækja í Mbappe.
<i>„Við þekkjum hvorn annan mjög vel en hann er ekki minn leikmaður og ég get ekki rætt um hann. Sjáum hvað hann gerir í framtíðinni,"</i> sagði Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, á fréttamannafundi.

Samningur Mbappe við PSG rennur út 2022 og hann hefur ekki náð samkomulagi um framlengingu.
Ef Mbappe fer til Spánar í sumar segir Tuttosport að PSG gæti fyllt í skarðið með því að fá Ronaldo frá Juventus.
Ronaldo á einnig eitt ár eftir af samningi sínum.
Hinsvegar er sagt að Juventus sé ekki að íhuga að selja portúgölsku stórstjörnuna.