Það verður vonandi boðið upp á nóg af fjöri í Þýskalandi í dag en fimm leikir eru spilaðir í Bundesligunn i.
Bayern Munchen er með sjö stiga forskot á toppnum fyrir þessa umferð og spila meistararnir við Union Berlin á útivelli.
Union er í mikilli Evrópubaráttu og er fjórum stigum á eftir Leverkusen sem situr í sjötta sætinu.
Borussia Dortmund er einnig í eldlínunni en liðið mætir Stuttgart á útivelli í lokaleiknum. Dortmund þarf á stigum að halda í baráttu um Evrópusæti.
ÞÝSKALAND: Laugardagur
13:30 Werder - RB Leipzig
13:30 Hertha - Gladbach
13:30 Eintracht Frankfurt - Wolfsburg
13:30 Bayern - Union Berlin
16:30 Stuttgart - Dortmund
Athugasemdir