10.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Emerton til Blackburn. (Staðfest)
Brett Emerton ástralski landsliðsmaðurinn knái hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Blackburn. Emerton sem kemur frá Feyenoord er 24 ára og getur spilað í vörn og á miðju. Kaupverðið var ekki gefið upp en reyndar á Emerton eftir að fá atvinnuleyfi en það verður væntanlega lítið mál.
