Sindri 4-5 Vængir Júpíters
1-0 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('2)
2-0 Mate Paponja ('4)
2-1 Magnús Pétur Bjarnason ('15)
2-2 Magnús Pétur Bjarnason ('24)
2-3 Hjörleifur Þórðarson ('36, víti)
3-3 Tómas Leó Ásgeirsson ('46)
3-4 Brynjar Gauti Þorsteinsson ('52)
4-4 Mate Paponja ('59)
4-5 Brynjar Gauti Þorsteinsson ('73)
Fimm leikir fara í dag fram í elleftu umferð 3. deildar karla. Einum leik er lokið en Sindri tók á móti Vængjum Júpíters klukkan 17:00.
Nóg var skorað á Höfn og litu alls níu mörk dagsins ljós. Sindri komst í 2-0 en Vængir svöruðu með þremur og komust í 2-3 og þannig var staðan í hálfleik.

Sindramenn jöfnuðu í upphafi seinni hálfleiks en Brynjar Gauti Þorsteinsson kom Vængjum aftur yfir skömmu síðar. Mate Paponja jafnaði fyrir Sindra en Brynjar Gauti skoraði níunda mark leiksins og sigurmark hans á 73. mínútu fyrir Vængi.
Þetta er fimmti sigur Vængja Júpíters í röð og liðið situr í 2. sæti deildarinnar eins og stendur. KF og Kórdrengir geta komist uppfyrir þá með sigri í sínum leikjum í kvöld. Sindri er í 7. sæti með 13 stig.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir