Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. júlí 2021 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spinazzola ferðaðist með ítalska liðinu til London
Mynd: EPA
Leonardo Spinazzola ferðaðist með landsliðsfélögum sínum frá Ítalíu til London en hann sleit hásin gegn Belgíu í 8-liða úrslitum og verður frá í um 6 mánuði.

Ítalía mætir Englandi í úrslitaleik EM á morgun en liðið lagði Spán í vítaspyrnukeppni í undan úrslitum.

Spinazzola vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðuna sína á mótinu þangað til hann varð fyrir því óláni að meiðast.

ESPN FC birti skemmtilegar myndir af Spinazzola m.a. heilsa upp á Jorginho í flugvél ítalska landsliðsins sem var á leið til London þar sem úrslitaleikurinn fer fram.

Hann mun því væntanlega vera staddur á Wembley þegar leikurinn fer fram að styðja sína menn.


Athugasemdir
banner
banner
banner