Fotbolti.net
08.09.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð

Kerim Alajbegovic í leik með Bosníu á HM. Hann gekk í raðir Juventus í sumar.

Kerim Alajbegovic í leik með Bosníu á HM. Hann gekk í raðir Juventus í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal, leikmaður Barcelona og Spánar, á möguleika á því að vera valinn besti ungi leikmaðurinn á á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni þriðja árið í röð.

Tilnefningar voru opinberaðar í dag og er hinn 19 ára Yamal meðal tilnefndra. Liðsfélagi hans Pau Cubarsí er einnig tilnefndur en saman urðu þeir Spánarmeistarar og heimsmeistarar.

Tveir leikmenn sem eru nýkomnir í ensku úrvalsdeildina eru tilnefndir; það eru Ayyoub Bouaddi pg Johan Manzambi. Auk þeirra er Éli Junior Kroupi hjá Bournemouth á listanum.
Bodö/Glimt tilnefnt sem félag ársins á Ballon d'Or hátíðinni
TENGT EFNI

Bodö/Glimt tilnefnt sem félag ársins á Ballon d'Or hátíðinni

Tilnefningar sem besti ungi leikmaðurinn í karlaflokki:
Kerim Alajbegovic (Juventus/Bosnía og Hersegóvína)
Ayyoub Bouaddi (Manchester City/Marokkó)
Pau Cubarsí (Barcelona/Spánn)
Yan Diomandé (Real Madrid/Fílabeinsströndin)
Lennart Karl (Bayern München/Þýskaland)
Éli Junior Kroupi (Bournemouth)
Lamine Yamal (Barcelona/Spánn)
Johan Manzambi (Aston Villa/Sviss)
Ibrahim Maza (Bayer Leverkusen/Alsír)
Warren Zaïre-Emery (Paris Saint-Germain/Frakkland)

Tilnefningar sem besti ungi leikmaðurinn í kvennaflokki:
Veerle Buurman (Chelsea/Holland)
Vicky López (Barcelona/Spánn)
Felicia Schröder (Real Madrid/Svíþjóð)
Clara Serrajordi (Barcelona/Spánn)
Lily Yohannes (Lyon/Bandaríkin)
Cubarsí var valinn besti ungi leikmaðurinn á HM.

Cubarsí var valinn besti ungi leikmaðurinn á HM.

Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal er sá eini sem hefur unnið verðlaunin tvisvar.

Lamine Yamal er sá eini sem hefur unnið verðlaunin tvisvar.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.