Fotbolti.net
08.09.26 - 13:31
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Stjórnarmenn gefa eftir sætin sín á sögulegum leik

Indónesinn Mirwan Suwarso er forseti Como.

Indónesinn Mirwan Suwarso er forseti Como.

Canon

Mynd: EPA

Það verður stór stund fyrir Como á Ítalíu fimmtudaginn þegar liðið tekur á móti RB Leipzig í sínum fyrsta Meistaradeildarleik í 119 ára sögu félagsins.

Como komst í keppnina með því að enda í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar undir stjórn Cesc Fabregas, fyrrum miðjumanns Arsenal, Chelsea and Barcelona. Uppgangur Como undanfarin ár hefur vakið mikla athygli.
Miklu færri munu komast að en vilja á leiknum þar sem Stadio Giuseppe Sinigaglia leikvangurinn tekur aðeins um 12 þúsund manns. Sá sætafjöldi fór niður um þúsund til að koma að útsendingarbúnaði og tæknibúnaði UEFA.

Um tíma leit út fyrir að Como fengi ekki að spila heimaleiki sína í keppninni á vellinum þar sem hann stenst ekki kröfur. En eftir endurbætur í sumar fékk félagið undanþágu.

Forseti félagsins, Mirwan Suwarso, hefur greint frá því að hann sjálfur og fleiri stjórnarmenn hafi ákveðið að gefa eftir sæti sín á vellinum í hendur eldri stuðningsmanna.

„Þar sem miðafjöldi er takmarkaður getum við því miður ekki tekið á móti öllum sem hefðu viljað vera á leiknum. Hinsvegar höfum ég og nokkrir stjórnendur félagsins ákveðið að gefa eftir sæti okkar fyrir þennan leik. Við viljum að þessum sætum verði úthlutað til stuðningsmanna sem hafa beðið lengst, aðdáenda fæddra árið 1950 eða fyrr og hafa fylgt Como í gegnum allar deildir," segir Suwarso.
Cesc Fabregas, stjóri Como.

Cesc Fabregas, stjóri Como.

Canon

Mynd: EPA

Stadio Giuseppe Sinigaglia.

Stadio Giuseppe Sinigaglia.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.