Ray stýrir Grindavík áfram - „Held það sé einsdæmi"

Verður áfram með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við þurfum að spíta í lófana og reyna halda öllum'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók við liðinu eftir tímabilið í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ray lék með Grindavík á árunum 1999-2012.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Ibrahima Camara kom inn á miðju Grindavíkur í glugganum og hjálpaði til við að ná jafnvægi í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætlar sér að koma liðinu upp úr 2. deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður áfram með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík féll úr Lengjudeildinni á laugardag og verður í fyrsta sinn síðan 1989 í þriðju efstu deild á næsta tímabili.
Fótbolti.net ræddi við Ray í dag.

Engan bilbug að finna á Grindvíkingum - „Beint upp aftur"
„Ég talaði mikið um að við þyrftum að þétta vörnina, ætluðum að vera eitt besta varnarliðið í deildinni og vorum eitt af þeim (fjögur lið fengu á sig færri mörk), en við náðum ekki að loka leikjunum (ekkert lið skoraði færri mörk). Þetta endaði í sex 0-0 jafnteflum. Við fórum þá leiðina þegar tímabilið var u.þ.b. hálfnað að bæta aðeins í sóknarleikinn og því fengum við aðeins fleiri mörk á okkur seinni hluta mótsins. Á móti unnum við fjóra leiki á lokakaflanum. Í síðustu ellefu leikunum unnum við fjóra, gerðum þrjú jafntefli og töpuðum fjórum. Þegar ég horfi til baka erum við að tapa stigum á móti liðunum sem voru í kringum okkur og það er bara dýrt."
„Við vorum með mjög ungt lið ásamt 3-4 reynslumeiri mönnum. Við bara höldum áfram, þeir strákar sem voru á sínu fyrsta fulla tímabili í meistaraflokki og voru reglulega í byrjunarliðinu, þeir eflast bara við þetta og verða bara betri og betri," segir Ray.
Náðu ekki að sýna gæðin til að klára leikinn
Grindavík náði ekki að sigra Ægi í lokaleiknum en sigur þar hefði þýtt áframhaldandi vera í næstefstu deild.
„Það vantaði upp á nokkur atriði, vera yfirvegaðri í færunum okkar. Ég held þeir hafi skorað úr sínu eina skoti í leiknum. Við fengum þrjú dauðafæri fyrir það þar sem við hefðum getað gert út um leikinn. Okkur vantaði bara smá meiri gæði til að klára leikinn. Gæðin eru til staðar en vantaði að sýna þau þarna."
„Súrt að horfa á það og manni finnst það ósanngjarnt"
Grindavík endaði með 25 stig sem hefði dugað í 7. sætið árið á undan og er stigi minna en Grindavík fékk 2024 þegar Grindavík endaði tíu stigum fyrir ofan fallsæti.
„Það er mjög svekkjandi að horfa í það. Ég held það sé einsdæmi að lið sem tapar færri leikjum en liðin í 3.-5. sæti falli. Við gerðum tíu jafntefli sem telur of lítið á endanum. Við töpuðum 1/3 af leikjunum og það er súrt að horfa á það og manni finnst það ósanngjarnt. Það er kannski satt sem sagt er, sóknarleikur er besta vörnin og við þurfum að gera betur í okkar sóknarleik."
Verður áfram og ætlar að koma liðinu upp
Hvernig sér framhaldið við þér?
„Ég ætla að vera áfram. Það var aldrei spurning. Þessir dagar, laugardagurinn og sunnudagurinn, voru gríðarlega erfiðir líkamlega og andlega. En nú horfum við fram á bjartari daga, reynum að fá hópinn til að rísa upp og koma liðinu aftur í Lengjudeildina."
Ungir leikmenn sem verða reynslumeiri
Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðruvísi?
„Algjörlega. Ef aðstæður hefðu verið aðeins öðruvísi þá hefðum við kannski bætt aðeins í sóknarleikinn. Við þurftum aðeins að færa leikmenn og náðum í Ibra í einhverja fimm leiki. Hann gerði gæfumuninn. Það þarf fleiri reynslubolta þegar liðið er svona ungt. Á endanum verða strákarnir auðvitað reynslumeiri, en þegar þeir eru að byrja þá þurfa þeir stöðugleika, hann næst með fleiri leikjum. Við erum nokkuð vel settir með þá stráka núna. Það er eðlilegt að ungur hópur rokkar svolítið upp og niður í frammistöðu, þeir verða að fá að gera það til að læra, verða að fá að gera mistök. Það þarf að fínpússa hlutina og verða betri, taka góðu hlutina með sér og læra af þeim slæmu."
Ef þú horfir til baka, sérðu fyrir þér að einn reynslubolti til viðbótar fyrir mót hefði breytt tímabilinu?
„Það er mjög auðvelt að segja það í dag, en ég held það já. Ef við hefðum fengið einn í viðbót, einn miðjumann, kantara eða sóknarmann, þá hefði það kannski breytt hlutunum, en maður veit ekki hvernig hópurinn hefði tekið í að fá einn í viðbót. En fyrir mér er alltaf kostur að vera með reynslumeiri menn, með því fæst meiri stöðugleiki. Það var samt ákveðinn stöðugleiki, við vildum gera okkar heimavöll að vígi og við töpuðum tveimur heimaleikjum og fimm útileikjum. En við unnum bara einn útileik."
Finnst hann og hópurinn skulda félaginu
Markmið Rays er augljóst, hann vill koma Grindavík upp úr 2. deild á næsta tímabili.
„Já, það var fyrsta hugsun eftir leikinn á laugardaginn. Við þurfum að spíta í lófana og reyna halda öllum. Það verður erfitt að halda 100% af kjarnanum en við viljum reyna að halda allavega 80% af honum og byggja ofan á það. Ég vona að strákarnir séu klárir í þetta, mér finnst við skulda félaginu. Félagið hefur verið í smá erfiðleikum undanfarin ár og okkur skortir stöðugleika. Ég held að leikmannahópurinn sem við erum með geti komið okkur aftur upp og náð svo stöðugleika í næstefstu deild. Ef markmiðið næst á næsta ári sjáum við svo til hvort við getum sett markið eitthvað hærra," segir Ray að lokum.

'Við þurfum að spíta í lófana og reyna halda öllum'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók við liðinu eftir tímabilið í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ray lék með Grindavík á árunum 1999-2012.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Ibrahima Camara kom inn á miðju Grindavíkur í glugganum og hjálpaði til við að ná jafnvægi í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætlar sér að koma liðinu upp úr 2. deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

