Fotbolti.net
08.09.26 - 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"

Hilmar Jökull með gjallarhornið.

Hilmar Jökull með gjallarhornið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Á föstudag spilar Breiðablik sinn mikilvægasta leik á tímabilinu þegar liðið mætir Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Gengi Breiðabliks í Bestu deildinni hefur verið vel undir væntingum og eina vonin um Evrópusæti er sigur á föstudagskvöld.

Í gær bárust þær fréttir að Afturelding væri búið að selja umtalsvert fleiri miða á úrslitaleikinn en Breiðablik. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 19:00.

Hilmar Jökull, harðasti stuðningsmaður Breiðalbiks, hefur ritað ákall til stuðningsmanna Breiðabliks.
Pistill Hilmars
Er liðið fyrir fólkið?

Næsta föstudag bíður okkar bikarúrslitaleikur. Og ég veit alveg hvað einhverjir eru að hugsa: „Af hverju ætti ég að mæta?“

Gengið hefur ekki verið eins og við vildum undanfarið. Úrslitin hafa valdið vonbrigðum, frammistaðan ekki verið upp á það besta og það er auðvelt að finna sér ástæðu til þess að sleppa því að mæta.

En kannski er það einmitt núna sem við þurfum að mæta. Því það er auðvelt að vera Bliki þegar allt gengur upp. Það er auðvelt að syngja þegar liðið vinnur. Auðvelt að klappa þegar stigunum á töflunni fjölgar og allt leikur í lyndi.

En hvað gerist þegar á móti blæs? Hvar er Blikahjartað þá?

Blikahjartað er ekki eitthvað sem við tökum upp úr skúffunni þegar okkur hentar. Það er ekki háð stöðunni í deildinni, töflunni eða síðustu fimm eða tíu úrslitum.

Blikahjartað kemur fram í okkur einmitt þegar liðið þarf á okkur að halda.

Við getum gagnrýnt. Við getum verið ósátt. Við getum krafist meiri metnaðar, betri frammistöðu og betri úrslita. Það er allt hluti af þessu. En á föstudaginn er ekki dagurinn til að snúa baki við liðinu.

Þetta er bikarúrslitaleikur. Einn leikur. Einn titill. Eitt kvöld. Og Breiðablik þarf á Blikum að halda.

Þá kemur líka spurningin sem mér finnst vert að við spyrjum okkur: Er liðið fyrir fólkið?

Ef svarið er já, þá hlýtur það að þýða eitthvað. Þá hlýtur sambandið á milli okkar og liðsins að ganga lengra en bara þegar vel gengur. Af því að ef liðið er okkar þegar það vinnur, þá er það líka okkar þegar það tapar.

Ef við ætlum að kalla okkur Blika þegar bikarinn fer á loft, þá þurfum við líka að vera Blikar þegar liðið stendur í mótbyr.

Við höfum öll upplifað augnablik þar sem Breiðablik hefur gefið okkur eitthvað sem erfitt er að útskýra fyrir fólki sem skilur ekki hvað þetta snýst um. Augnablik sem við tökum með okkur alla leið í gröfina.

Stoltið
Gleðina
Sársaukann
Samfélagið
Vináttuna

Þessi tilfinning innra með þér sem kviknar þegar þú sérð grænt og hvítt og veist að þetta er liðið okkar Það er Blikahjartað, og nú er kominn tími til að sýna það. Ekki vegna þess að liðið hafi unnið sér það inn í síðustu leikjum. Heldur vegna þess að við höfum valið okkur þetta lið.

Sama hvernig staðan er.
Sama hvernig síðustu mánuðir hafa gengið.
Sama hvað stendur á stigatöflunni.

Á föstudaginn þurfum við:

Að mæta
Að syngja
Að styðja

Svo sjáum við til hvað gerist á vellinum.

Breiðablik er ekki bara liðið sem við styðjum þegar allt gengur upp. Breiðablik er liðið okkar.

Blikar koma
Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með ákall til stuðningsmanna - „Hvar er Blikahjartað þá?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.