08.09.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
McTominay gekkst undir vel heppnaða hjartaaðgerð

McTominay er lykilmaður í skoska landsliðinu.

Mynd: EPA

Napoli hefur staðfest að hjartaaðgerð Scott McTominay hafi gengið vel og er búist er við að hann snúi aftur til æfinga með liðinu eftir tvær vikur.
Skoski miðjumaðurinn leitaði til læknis eftir að hann fann fyrir hjartsláttartruflunum. Hann gekkst undir aðgerð á sjúkrahúsi í Manchester í morgun.

TENGT EFNI
McTominay í aðgerð vegna hjartsláttartruflana
„Eins og áætlað var fór Scott McTominay í aðgerð á Spire-sjúkrahúsinu í Manchester og tókst hún fullkomlega,“ segir í yfirlýsingu á vefsíðu Napoli.
McTominay mun snúa aftur til æfinga í komandi landsleikjaglugga en talið er að tímasetning aðgerðarinnar hafi verið valin af Napoli til að lágmarka fjölda leikja sem hann missir af.
Hann verður ekki með í Meistaradeildarleik gegn Arsenal á morgun og missir einnig af komandi leikjum gegn Bologna og Fiorentina í ítölsku A-deildinni. Hann var ekki með í 3-2 tapi Napoli gegn ríkjandi meisturum Inter um liðna helgi.