Alex Freyr meiddist í Sambandsdeildinni - Dagur Dan í sigurliði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Matthías Már

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Elísson var í byrjunarliðinu hjá NSÍ Runavík sem gerði jafntefli í fyrri leik sínum við Hamrun frá Möltu í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Liðin mættust í Færeyjum en Alex Freyr meiddist eftir 15 mínútna leik og tóku liðsfélagar hans forystuna skömmu síðar.
Gestirnir frá Möltu jöfnuðu snemma í síðari hálfleik og urðu lokatölurnar 1-1, svo viðureignin er enn galopin fyrir seinni leikinn.
Dagur Dan Þórhallsson var þá í byrjunarliðinu í sigri CF Montréal gegn Vancouver FC í 8-liða úrslitum kanadísku úrslitakeppninnar. Dagur Dan lék 87 mínútur en sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Montréal á eftir að spila heimaleikinn við Vancouver á sunnudaginn og mun sigurvegarinn fara áfram í undanúrslitin þar sem sterkt lið Vancouver Whitecaps er líklegur andstæðingur.
NSÍ Runavík 1 - 1 Hamrun
Vancouver FC 1 - 2 CF Montreal