10.07.26 - 10:58
Elvar Geir Magnússon
Árni Vill í Stjörnuna (Staðfest)

Árni Vilhjálmsson í búningi Stjörnunnar.

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur krækt í sóknarmanninn Árna Vilhjálmsson en félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum rétt í þessu.
Árni, sem er 32 ára, verður löglegur með Garðabæjarliðinu þegar glugginn opnar þann 16. júlí.
Hann spilaði síðast á Íslandi árið 2021, þá með uppeldisfélaginu Breiðabliki. Frá því hefur hann spilað með Rodez í Frakklandi, Zalgiris í Litháen, Novara á Ítalíu og með Al-Taraji og Al-Sahel í þriðju efstu deild í Sádi-Arabíu.
Fyrir er Stjarnan með þá Emil Atlason og Andra Rúnar Bjarnason sem kosti í fremstu stöðu vallarins.
Á ferlinum hefur Árni einnig spilað í Úkraínu, Póllandi, Noregi og Svíþjóð. Á Íslandi hefur hann eingöngu spilað með Breiðabliki og hálft tímabil (2012) á láni með Haukum.
Stjarnan er í sjöunda sæti Bestu deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | KR | 18 | +25 | 39 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |