Fotbolti.net
10.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Frá Nottingham til Grikklands (Staðfest)

Frá Nottingham til Grikklands (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski kantmaðurinn Jota Silva er kominn til Olympiakos á eins árs lánssamningi frá Nottingham Forest sem inniheldur kaupmöguleika, sem er talinn nema um 10 milljónum evra.
Jota er 26 ára gamall og hefur spilað tvo landsleiki fyrir Portúgal. Hann skoraði fjögur mörk í 37 leikjum með Nottingham Forest tímabilið 2024-25 og lék á láni hjá Besiktas á síðustu leiktíð.

Hann skoraði 5 mörk í 18 deildarleikjum í Tyrklandi og reynir nú fyrir sér hjá Olympiakos, sem er systurfélag Forest í eigu Evangelis Marinakis.

Jota á tvö ár eftir af samningi sínum við Forest eftir að félagið keypti hann úr röðum Vitória de Guimaraes fyrir 7 milljónir evra sumarið 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.