Fotbolti.net
10.07.26 - 14:30
Víðir Sigurðsson

Kominn í hóp fimm fræknu

Emil Atlason fagnar með liðsfélögum sínum í gærkvöld.

Emil Atlason fagnar með liðsfélögum sínum í gærkvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emil Atlason er fyrsti leikmaður Stjörnunnar sem skorar þrennu í Evrópukeppni eftir að hann skoraði öll mörk liðsins í 3:1 sigrinum á Víkingi frá Götu í gærkvöld.

Þessi frétt er hluti af grein sem birtist 9. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Umfjöllunin er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Víðir Sig: Emil með fjórðu þrennuna og sló markamet
TENGT EFNI

Víðir Sig: Emil með fjórðu þrennuna og sló markamet



Hann sló jafnframt markametið í Evrópuleikjum hjá félaginu. Það átti Ólafur Karl Finsen sem hefur skorað sex mörk í Evrópuleikjum fyrir félagið.

Emil er nú kominn með átta Evrópumörk fyrir Stjörnuna og hann skoraði áður tvö mörk fyrir KR í Evrópukeppni. Þar með er hann fimmti leikmaðurinn sem nær að skora 10 mörk eða fleiri í Evrópukeppni fyrir íslenskt lið.

Þessir fimm fræknu eru eftirtaldir:

15 Nikolaj Hansen, Víkingi
13 Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðabliki
11 Atli Guðnason, FH
10 Emil Atlason, Stjörnunni og KR
10 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV og FH

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.